Þessi dagur leið afar skringilega.... Ég vaknaði við mikinn skarkala kl 7:15 stóð upp og fékk mér að éta. Varð rosalega fúll út í sjálfan mig þegar að ég mundi að ég væri í gati í fyrsta tíma. Svaf svo allt of lengi og vaknaði ekki fyrr en ellefu. Þá dreif ég mig upp í skóla þar sem ég sat framboðsfund frambjóðenda allra flokka í Suðurkjördæmi sem eru allt of margir. Ég held að ég styðji frjálslynda flokkinn. En það skiptir ekki máli því að ég á afmæli svo seint á árinu að ég næ ekki að kjósa. Slæmt fyrr frjálslynda. Ég hef samt verið að hugsa út í þetta. Mér finnst dónaskapur að segja að pólitík komi manni ekkert við. Ef svo fer að maður hafi enga skoðun ber manni samt skyldu til að mæta á kjördag og skila auðu. Við ráðum það gerir enginn það fyrir okkur...
Wednesday, April 30, 2003
Monday, April 28, 2003
Ég var að taka könnuna á http://www.afstada.net/ til að athuga hvaða stjórnmálaflokki mín viðhorf aðhyllast þetta voru niðurstöðurnar þær komu mér svo sem ekki mikið á óvart.
Niðurstaða:
Stuðningur þinn við stefnu flokkanna er eftirfarandi:
1. 54%
2. 38%
3. 38%
4. 38%
5. 31%
1. Frjálslyndi flokkurinn (xf).
2. Framsóknarflokkur (xb).
3. Sjálfstæðisflokkur (xd).
4. Vinstri grænir (xu).
5. Samfylking (xs).
Þetta var skrýtið en þessi óháðu framboð og T listinn hérna í suðurkjördæminu eru ekki inni.
Hvet alla til að taka þessa könnun!!!
Niðurstaða:
Stuðningur þinn við stefnu flokkanna er eftirfarandi:
1. 54%
2. 38%
3. 38%
4. 38%
5. 31%
1. Frjálslyndi flokkurinn (xf).
2. Framsóknarflokkur (xb).
3. Sjálfstæðisflokkur (xd).
4. Vinstri grænir (xu).
5. Samfylking (xs).
Þetta var skrýtið en þessi óháðu framboð og T listinn hérna í suðurkjördæminu eru ekki inni.
Hvet alla til að taka þessa könnun!!!
Ég fór út að labba í miðbæ Reykjavíkur um daginn. Ég var bara í góðu skapi. Svo geng ég í gegn um dimmt húsasund. Inga Ebba var memmér þannig að ég þurfti ekki að öskra af hræðslu. Síðan heyrði ég líka þessi massífu læti. Þá var ég greinilega kominn inn í aðaleðlunarstað katta í Reykjavík. Sko þetta var einhver massíf orgía hjá þessum köttum. Allavega þeir gátu skemmt sér þá varð þetta ýkt dularfullt. Á bakvið alla kettina stóð drungalegur kall sem ég beið eftir að hlypi á eftir mér og dræpi mig. En hann stóð bara kjurr. Ég stend fast í þeirri meiningu að þetta hafi verið frambjóðandi Frjálslyndra í Suðurkjördæmi það getur ekki verið annar. Það hefur nefnilega enginn annar séð hann nema ég !!!!!!
ég er búinn að vera að lesa bloggið hennar Hoffritz og hún er að kvarta undan íslenskunni í íslenskri dagskrárgerð . Ég held bara að ég sé samála henni. Um daginn t.d. gerði ég það alveg óvart að ég hlustaði á FM 957...Ég endurtek það var óvart. Svo byrjar maður að tala þar. Hann var að tala um að börn á Ítalíu séu svo oft barinn þegar að þau koma heim með prófblöðin ef þau eru slæm. Þá sagði þessi ágæti maður orðrétt ,, pælið í essu marr ef marr hefði nú komið með slæmareinkannirheim og verið barinn aldrei fékk ég góðar einkannir" Ég er nú bara ekkert hissa á því að hann hafi ekki fengið góðar einkunnir þessi drengur.... En ég vill ekki fara að verða einhver ofsaíslenskumálbætir. Það er ekki mitt starf og þó!
Sunday, April 27, 2003
ég er búinn að liggja í eðlisfræðilegum hugsunum á meðan ég var að vinna á kassa í Bónus í allann dag...... Vitiði hvar maður getur séð eilífðina á Royal lyftidufti...þar er eilífðin
Ég er loksins búin að læra á þetta blogg þannig að núna get ég hin mikli selfyssingur byrjað að blogga að alvöru.... ég heyri sko í Also spracht zarathusta fyrir aftan mig eftir Richard Strauss( bara tilfinningin við að vera aftur byrjaður að blogga)....Hafiði annars velt fyrir ykkur möguleikanum á þessu... Segjum nú sem svo ef maður á ekkert þjóðerni bara finnst einhver staðar enginn veit hver á mann og maður elst bara upp á einhverju svæði sem ekkert land á t.d. Antartíka (reyndar ekki hægt að gera það en svona þetta er bara dæmi) ..... Þarf maður þá að láta einhverjum lögum....ég meina hver kemur og skammar mann ef maður drepur mann eða eitthvað er hægt að sækja mann til saka fyrir það.....þetta er rosalega abstrakt
Thursday, February 06, 2003
Ég er hneykslaður á hinni Árnessýslísku lögreglu...ég var einn heima hjá mér í svefnklæðnanði einn heima og horfa á sjónvarpið kl. 2;40 um nótt og svo byrja að koma ljós meðfram húsinu og ég hrekk í kút og held að innbrotsþjófar þannig að ég fer inni í æfingaherbergið þar sem eru dyr með gleri í og sést út og þá stendur lögga fyrir utan og lýsir á mig og spyr,,,,,,Vantar þig aðstoð???? ég er náttúrulega hiss og spyr ,,við hvað????? þá var bara málið að fólkið í næsta húsi hafði læst lyklana inni í bílnum,,,,Mér var furðanlega létt!!!
Sælir nú verður sko byrjað að blogga svo Ingibjörg og aðrir lemmi mig ekki.....nú er ég sko byrjaður í skólanum og allt í farvegi þannig að miðdegisþunglyndið leggst á mann
Friday, December 20, 2002
Á ég að segja ykkur soldið.....Selfoss er sorglegur staður viljiði heyra staðreyndir um það hérna er t.d. ekki bíó það eru tveir pínulitlir barir þ.e.a.s. pakkhúsið (gamlingjabar) og HM café pínulítill staður......ok allavega hvað er hægt að gera meira hérna Inghóll er lokaður og KFC að fara að koma í staðinn sem er frekar skrýtið svo er bara allt búið.
Mér finnst reyndar soldið skrýtið að í hvert skipti sem að ég fer í bíó þá hitti ég alltaf annan selfyssing sem er MJÖG sorglegt......já og svo er það ,,rúnturinn" á Selfossi sem er bara einn hringur það er Austurvegurinn fram og til baka fram og til baka.....hljómar leiðinlega og svo horfir fólk á hvor annað eins og naut á nývirki allavega .Hjálp er ekki hægt að gera e-h svo að ég keyri allavega ekki inn á kaupfélagsplanið
Mér finnst reyndar soldið skrýtið að í hvert skipti sem að ég fer í bíó þá hitti ég alltaf annan selfyssing sem er MJÖG sorglegt......já og svo er það ,,rúnturinn" á Selfossi sem er bara einn hringur það er Austurvegurinn fram og til baka fram og til baka.....hljómar leiðinlega og svo horfir fólk á hvor annað eins og naut á nývirki allavega .Hjálp er ekki hægt að gera e-h svo að ég keyri allavega ekki inn á kaupfélagsplanið
Halló í dag byrjaði ég að blogga......vá en ég er samt sko enginn Betarokk...allvega ég er orrinn á selfossi sem var nýlega kosið mesta skítapleis í heimi á tilverunni...
Helló túdei æ started tú blog ..........vó böt æm stil nó betarokk....eníveí æm orrinn á selfoss ðat wos rísentlý vóted ðe biggest shitpleis on örð on the bíing
Allavega ég vona að ykkur leiðist bloggið mitt ekki mikið
Helló túdei æ started tú blog ..........vó böt æm stil nó betarokk....eníveí æm orrinn á selfoss ðat wos rísentlý vóted ðe biggest shitpleis on örð on the bíing
Allavega ég vona að ykkur leiðist bloggið mitt ekki mikið
